Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Við leggjum áherslu á árangur viðskiptavina okkar. Við viljum kynnast þeim vel og nýta styrkleika þeirra til að efla viðskipti þeirra og skapa ný tækifæri.
Íslenska auglýsingastofan var stofnuð árið 1988 og hefur um árabil verið ein stærsta og öflugasta auglýsingastofa landsins. Íslenska er alhliða stofa sem veitir viðskiptavinum heildarþjónustu á sviði markaðsmála. Við viljum byggja öflugt og skapandi markaðsstarf á sterkum faglegum grunni, vandaðri ráðgjöf og markvissum rannsóknum. Við trúum því að vel útfærð markaðsstefna og langtímahugsun séu lykillinn að árangursríku markaðsstarfi.
RV var stofnað 18. maí 1982 og hefur á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun byggt upp traust samband við góða viðskiptavini og jafnan litið á viðskiptin sem samstarf sem báðir aðilar hafa hag af.
RV er sérhæft sölu- og dreifingarfyrirtæki með hreinlætis-, hjúkrunar- og rekstrarvörur og leggur áherslu á heildarlausnir sem svara þörfum viðskiptavina og að veita ráðgjöf sem hentar aðstæðum á Íslandi. Heilbrigðissvið RV þjónar heilbrigðisstofunum og fyrirtækjum um land allt með þekktum vörumerkjum og faglegri ráðgjöf á þessu sviði.
Hlutverk RV hefur frá upphafi verið að sinna þörfum stofnana og fyrirtækja fyrir almennar rekstrar- , hreinlætis- og hjúkrunarvörur. Sú áhersla sem RV leggur á hagkvæmar heildarlausnir varðandi hreinlætismál, öryggismál og hjúkrunarvörur fyrir stofnanir og einstaklinga kallar á stöðugar endurbætur í þjónustunni og lifandi ráðgjöf á því sviði.
Markmið RV er að bjóða ávallt fyrsta flokks vöruúrval, persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf.
Rekstrarvörur er þjónustufyrirtæki sem tekur stöðugum breytingum. RV-merkið er trygging fyrir áreiðanleika, stöðugleika og gæðum.
Hjá RV starfar samhentur hópur 54 starfsmanna á Íslandi og 14 í Danmörku hjá RV Unique.
Grunngildi RV eru byggð á fagmennsku, aðlögunarhæfni, virðingu, samstarfi og gæðum í daglegum störfum.
Starfsmenn RV fá þjálfun og fræðslu sem gerir þá öflugri á sínu sviði. RV er reyklaus vinnustaður.