Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrarþátttöku viðkomandi einstaklings.
Rétt á þjónustu VIRK eiga þeir einstaklingar sem ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests og eru með beiðni eða vottorð frá lækni og hafa það að markmiði að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði eða að auka þátttöku sína á vinnumarkaði.