stars 1 stars 2 stars 3

Við hjálpum fyrirtækjum að ná árangri. Við höfum boðið uppá regluleg markaðs- og þjónustunámskeið í rúm 9 ár. Starfsmenn frá nánast öllum 300 stærstu fyrirtækjum Íslands hafa verið þátttakendur ásamt starfsmönnum úr miklum fjölda minni fyrirtækja (sjá hér), út um allt land og úr öllum atvinnugreinum. Í heildina hafa á þriðja þúsund manns sótt námskeiðin. Eigendur Markaðsakademíunnar eru Guðmundur Arnar Guðmundsson og Klara Briem. Guðmundur Arnar hefur mikla fræðilega og hagnýta reynslu af markaðs- og þjónustumálum eftir að hafa starfað við markaðsmál og sem markaðsstjóri í hátt í 20 ár. Hann hefur starfað sem markaðsstjóri Íslandsbanka, Nova og WOW air, markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og sem vörumerkjastjóri Icelandair á Íslandi. Þá hefur hann veitt fjölda fyrirtækja ráðgjöf um hvernig haga megi markaðsstarfi. Ennfremur hefur hann kennt markaðsfræði og vörumerkjastjórnun við Háskólann í Reykjavík ásamt því að vera reglulegur gestafyrirlesari í öllum háskólum landsins. Hefur hann m.a. stýrt markaðsmálum hjá tveimur Markaðsfyrirtækjum ársins skv. ÍMARK, Icelandair 2011 og Nova 2014. Guðmundur er með BA honours í hagfræði frá Acadia University í Kanada og MBA frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa sótt stjórnendanám, þ. á m. Design Thinking við Harvard Business School. Hann hefur verið mentor í Startup Reykjavík og Startup Tourism, dómari í Gullegginu og markaðsráðgjafi fyrir fjölda fyrirtækja, af öllum stærðum og í mörgum ólíkum atvinnugeirum. Guðmundur sat í stjórn ÍMARK og veitti félaginu formennsku og tók þar þátt í vali á markaðsmanni ársins, áhrifaríkustu markaðsherferðinni, Lúðrinum og markaðsfyrirtæki ársins. Þá hefur hann verið leiðbeinandi fjölda háskólanema við lokaritgerðaskrif.

Website http://www.markadsakademian.is
Employees View employees
Technologies
Industry Advertising Services

Markaðsakademían Questions

Learn More
How It Works
get free account
Get a Free Account
Sign up for a free account. No credit card required. Up to 5 free lookups.
search page
Search the #1 Contact Database
Get contact details of over 700M profiles across 60M companies – all with industry-leading accuracy. Sales and Recruiter users, try out our Email Finder Extension.
get contact page
Use our AI-Powered Email Finder
Find business and personal emails and mobile phone numbers with exclusive coverage across niche job titles, industries, and more for unparalleled targeting. Also available via our Contact Data API.
G2 Leader Winter 2026 G2 Leader Mid Market Winter 2026 G2 Leader Small Business Winter 2026 G2 Most Implementable Winter 2026 G2 Best Est ROI Mid Market Winter 2026 G2 Leader Momentum Winter 2026 Inc Fastest Growing Private Companies 2026 Inc Best Workplace 2025
g2crowd
G2Crowd Trusted
chromestore
300K+ Plugin Users